Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 21. desember 2022 15:15
Elvar Geir Magnússon
Mbappe ákvað að taka sér ekki frí
Mbappe vann gullskóinn á HM.
Mbappe vann gullskóinn á HM.
Mynd: EPA
Aðeins þremur dögum eftir að hafa skorað þrennu í úrslitaleik HM þá er Kylian Mbappe mættur aftur til vinnu hjá Paris Saint-Germain.

Franska landsliðið tapaði fyrir Argentínu í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Móttökuathöfn var fyrir silfuverðlaunahafana í París við heimkomuna.

Búist var við því að Mbappe myndi ekki snúa aftur til æfinga hjá PSG fyrr en í næstu viku en leikmaðurinn magnaði vill gleyma vonbrigðunum á HM og er mættur á æfingasvæði félags síns.

Mótlæti hefur alltaf styrkt Mbappe sem hélt upp á 24 ára afmæli sitt í gær. Það má búast við því að hann verði áfram í hópi bestu leikmanna heims næsta áratuginn.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner