Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 22. janúar 2020 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalía í dag - Juventus tekur á móti Roma
Nær Roma að stríða Juventus?
Nær Roma að stríða Juventus?
Mynd: Getty Images
Það er stórleikur í 8-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í kvöld er Ítalíumeistarar Juventus taka á móti Roma.

Leikurinn fer fram í Tórínó á heimavelli Juventus og hefst hann á slaginu 19:45.

Í ítölsku úrvalsdeildinni er Juventus á toppnum með fjögurra stiga forskot og Roma í fjórða sæti með 13 stigum minna. En þetta er bikarinn og þar getur allt gerst.

Bæði þessi lið féllu út á slæman máta í 8-liða úrslitunum á síðustu leiktíð. Roma tapaði 7-1 fyrir Fiorentina og Juventus tapaði 3-0 gegn Atalanta.

miðvikudagur 22. janúar

ITALY: National Cup
19:45 Juventus - Roma
Athugasemdir
banner
banner
banner