Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
banner
   sun 22. mars 2026 19:37
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Munum nýta vonbrigðin til að eiga frábærustu tvo mánuði sem við höfum átt saman"
Mynd: EPA
Arsenal, toppliðið í úrvalsdeildinni, tapaði gegn Man City í úrslitum deildabikarsins en liðin eru í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er sannfærður um að liðið geti nýtt sér vonbrigðin til að tryggja sér deildartitilinn.

„Það er magnað hvað þetta lið hefur gert undanfarna átta mánuði og við munum nýta vonbrigðin og eldmóðinn til að eiga frábærustu tvo mánuði sem við höfum átt saman," sagði Arteta.

„Það er undir okkur komið, við munum nýta orkuna á réttan hátt. Nú þurfum við að ganga í gegnum sársaukan og vonbrigðin, það er erðlilegt og hluti af fótbolta."

Kepa Arrizabalaga átti erfitt uppdráttar í markinu hjá Arsenal en ákvörðun Arteta að velja hann í liðið hefur verið gagnrýnd.

„Ég get aldrei lofað leikmanni að hann spili í ákveðnum keppnum, þeir þurfa að vinna fyrir því og gera nóg. Við látum það sem við sjáum leiða okkur. Það sem hann hefur gert í keppninni og hvernig hann hjálpaði okkur að komast í úrslitaleikinn, ég tel að það hafi verið rétt að gera þetta," sagði Arteta.

„Mistök eru hluti af fótbolta og því miður gerðist það á mikilvægu augnabliki."
Athugasemdir
banner
banner