Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
   mið 22. júní 2016 12:23
Elvar Geir Magnússon
París
Raggi Sig með ávarp til íslensku þjóðarinnar
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Elsku Íslendingar. Í dag gefum við allt sem í okkur býr í einn leik. Allir sem einn. Inni í stofu, á barnum, uppi í stúku og inni á vellinum. Áfram Ísland."

Þetta skrifar varnarmaður íslenska landsliðsins, Ragnar Sigurðsson, á samskiptamiðlum.

Ragnar hefur verið einn allra besti leikmaður Íslands í fyrstu tveimur leikjum Evrópumótsins og var valinn maður leiksins í jafnteflinu gegn Ungverjalandi.

Ísland leikur gegn Austurríki í dag klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Með jafntefli eða sigri kemst íslenska liðið áfram á Evrópumótinu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner