Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 22. júní 2021 22:39
Brynjar Ingi Erluson
Southgate: Virkilega ánægðir með Saka
Bukayo Saka var besti maður leiksins
Bukayo Saka var besti maður leiksins
Mynd: EPA
Enski landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate var nokkuð ánægður með frammistöðuna í 1-0 sigrinum á Tékklandi á Evrópumótinu í kvöld en liðið tók toppsæti D-riðils og hefur ekki enn fengið á sig mark.

Raheem Sterling skoraði annað mark sitt á mótinu og sigurmark leiksins eftir fyrirgjöf Jack Grealish á 12. mínútu.

Englendingar sköpuðu sér nokkur hættuleg færi en tókst ekki að bæta við. Southgate var þó ánægður með framlag leikmanna.

„Mér fannst við byrja mjög vel. Við vorum stöðugir á boltanum og náðum að vinna í nokkrum hlutum á æfingu í gær en ég verð að hrósa leikmönnunum því þeir þurftu að aðlagast," sagði Southgate.

„Við höfum verið virkilega ánægðir með Bukayo Saka í þessum mánuði. Hann var magnaður þegar við spiluðum við Austurríki í Middlesbrough og okkur líkar vel við hvernig hann er með og án bolta."

„Tékkarnir eru mjög góðir. Þeir eru góðir á boltann og það er erfitt að brjóta þá niður. Við eigum nóg inni og eigum enn eftir að skora úr föstu leikatriði og ég veit að fólk hló að okkur af því við skoruðum bara úr þeim. Föstu leikatriðin eru mjög mikilvæg í stóru leikjunum og við verðum að koma þeim í lag. Við erum ekki alveg í okkar besta standi en við eigum augnablik þar sem við lítum mjög vel út," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner