Kvennalandsliðið skipað leikmönnum 18 ára og yngri tapaði fyrir Finnlandi, 1-0, í vináttuleik í dag en leikurinn fór fram í Lahden-leikvanginum í Lahti í Finnlandi.
Eina mark leiksins kom á 35. mínútu eftir góða sókn Finna endaði boltinn við teiginn og áttu heimakonur laglegt skot í vinstra hornið og reyndist það sigurmarkið.
Þetta var fyrri leikur liðanna en síðari leikurinn fer fram á föstudaginn.
Leikurinn var í beinni útsendingu á Youtube-rás KSÍ en hér fyrir neðan má sjá leikinn í dag í heild sinni.
Athugasemdir