Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 22. ágúst 2019 10:00
Magnús Már Einarsson
Wanyama og Nkoudou á förum frá Tottenham
Victor Wanyama
Victor Wanyama
Mynd: Getty Images
Victor Wanyama og Georges-Kevin NKoudou eru væntanlega báðir á förum frá Tottenham á næstu dögum.

Tottenham er í viðræðum við Club Brugge en belgíska félagið vill kaupa Wanyama á ellefu milljónir punda.

Hinn 28 ára gamli Wanyama kom til Tottenham frá Southampton árið 2016 en hann er ekki lengur í myndinni hjá Mauricio Pochettino stjóra Spurs.

Hinn 24 ára gamli NKoudou kom til Tottenham frá Mónakó á ellef milljónir punda árið 2016 en hefur einungis leikið tíu leiki í ensku úrvalsdeildinni síðan þá.

NKoudou hefur farið til Burnley og Mónakó á láni undanfarin tímabil en hann er nú á leið til Besiktas í Tyrklandi á 4,6 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner