Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
   mán 22. ágúst 2022 23:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp setti hendur á háls Fernandes - Algjörlega meinlaust
Fernandes fellur til jarðar.
Fernandes fellur til jarðar.
Mynd: EPA
Portúgalinn Bruno Fernandes fór í taugarnar á mörgum með frammistöðu sinni gegn Liverpool í kvöld.

Það er líklega það sem hann gerir manna best í deildinni, að fara í taugarnar á mönnum.

Fernandes fór mikið í taugarnar á stuðningsfólki Liverpool með hegðun sinni í leiknum. Hann gerði mikið úr ölluum atvikum, dýfði sér og vældi mikið í dómaranum.

Hann setti svo kirsuberið á kökuna með því að fara í einhvern furðulegan leik eftir mark Mohamed Salah. Hann vildi ekki gefa leikmönnum Liverpool boltann. Hann var þar á gulu spjaldi en slapp með að fá seinna gula.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, greindi frá því eftir leik að hann hefði verið ósáttur með tafir.

Klopp og Fernandes áttu áhugaverð samskipti eftir leik. Klopp setti hendur á háls Portúgalans en það virtust nú allir skilja léttir. Klopp sagði eftir leik að þetta hefði verið algjörlega meinlaust samtal, allir góðir.

Sjá einnig:
Fernandes gerði allt vitlaust - Átti hann að fá rautt spjald?


Athugasemdir
banner
banner
banner