Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United á Englandi, var afar ósáttur með dómgæsluna í 1-0 tapi liðsins gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Wilder gagnrýndi VAR afar mikið á síðasta tímabili og virtist það bitna oft á Sheffield United. Hawkeye-tæknin klikkaði í fyrsta sinn í sögunni í markalausu jafntefli liðsins gegn Aston Villa á síðasta tímabili.
Þetta var mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Villa hélt sér uppi á meðan Sheffield United missti af Evrópusæti. Wilder gagnrýndi VAR aftur eftir tapið í gær en hann var ósáttur með rauða spjaldið sem John Egan fékk.
Egan togaði í Ollie Watkins sem var að sleppa í gegn áður en Aaron Ramsdale hreinsaði frá og fékk Egan að líta rauða spjaldið í kjölfarið.
„Ég get ekki séð hvernig hann fær út að þetta sé rautt spjald og hvernig þeir í VAR-herberginu á Stockley Park geta gefið þetta," sagði Wilder.
„Af hverju skoðar Graham ekki skjáinn? Stjórnendur ensku úrvalsdeildarinnar hafa gefið það út að dómarar eigi að skoða þetta betur og það gerðist ekki einu sinni í dag."
Sheffield United fékk vítaspyrnu stuttu síðar er Matt Targett braut á Chris Basham innan teigs. Targett fékk gult spjald áður en Emiliano Martinez sá við John Lundstram á punktinum.
„Mín túlkun á reglunum er að þú verður að reyna að taka boltann. Hann gerði það ekki og það er ekki séns að hann hefði getað náð til knattarins þarna. Targett átti að fá rauða spjaldið en hann fær gult spjald og maður bíður eftir að VAR grípur inn í en svona án gríns er einhver þarna? Eru þeir allir sofandi?" sagði hann og spurði í lokin.
Athugasemdir