Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 22. september 2021 21:26
Ívan Guðjón Baldursson
Dregið í 16-liða úrslit: West Ham fær Man City
Mynd: EPA
Mynd: EPA
32-liða úrslitum enska deildabikarsins lauk í kvöld og var dregið í 16-liða úrslit eftir lokaflautin.

West Ham United, sem sló Manchester United út í kvöld, á heimaleik gegn Manchester City í næstu umferð á meðan Liverpool heimsækir Championship félagið Preston North End.

Arsenal tekur á móti Leeds í úrvalsdeildarslag og Chelsea fær Southampton í heimsókn. Leicester og Brighton eigast svo við á meðan Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley taka á móti Tottenham.

Annað hvort QPR eða Sunderland munu komast í 8-liða úrslitin og þá á Brentford útileik í Stoke.

16-liða úrslitin:
West Ham - Man City
Chelsea - Southampton
Arsenal - Leeds
Preston - Liverpool
Burnley - Tottenham
Leicester - Brighton
Stoke - Brentford
QPR - Sunderland
Athugasemdir
banner
banner
banner