Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 22. september 2022 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnhildur byrjaði í fjórða tapi Orlando í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir var í byrjunarliði Orlando Pride sem fékk North Carolina Courage í heimsókn. 


Þetta byrjaði illa fyrir Orlando þar sem liðið lenti undir eftir aðeins tveggja mínútna leik. Vont versnaði í uppbótartíma fyrri hálfleiksins þegar Tess Boade tvöfaldaði forystu Courage.

Gestirnir gerðu út um leikinn þegar sjö mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. 3-0 lokatölur.

Liðið hefur nú tapað fjórum leikjum í röð en þar á undan hafði liðið ekki tapað í sjö leikjum í röð. Liðið er með 21 stig í 20 leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner