Stuðningsmenn franska úrvalsdeildarfélagsins Saint-Etienne eru allt annað en sáttir með stöðu mála hjá félaginu.
Saint-Etienne er á botni deildarinnar með aðeins fjögur stig eftir tíu leiki. Liðið hefur ekki enn unnið deildarleik á tímabilinu.
Liðið er þessa stundina að spila við Angers í deildinni. Leikurinn hófst ekki á réttum tíma því stuðningsmenn Saint-Etienne ákváðu að henda blysum inn á völlinn fyrir upphafsflautið. Leikmenn þurftu að fara af vellinum um nokkra stund.
Stuðningsmenn Saint-Etienne vilja losna við þjálfarann Claude Puel. Fyrir leik var skilinn eftir borði á æfingasvæði félagsins. Á honum stóð: „Við gefum þér 24 klukkustundir til að segja af þér..."
Puel er ekki enn búinn að segja af sér og það pirrar stuðningsmennina. Þeir eru að þrýsta á hann að segja starfi sínu lausu.
Staðan í leiknum akkúrat núna er markalaus. Fyrri hálfleikurinn er hálfnaður.
Saint-Étienne supporters with a message to Claude Puel in front of the training ground today: “We’ll give your 24 hours to resign...” (📷@Site_Evect) pic.twitter.com/D8Nrif7ONq
— Get French Football News (@GFFN) October 21, 2021
St-Etienne fans have delayed their club's match against Angers after flooding the field with flares 😳
— B/R Football (@brfootball) October 22, 2021
With the club sitting at the bottom of Ligue 1, they're demanding the resignation of manager Claude Puel. pic.twitter.com/VcPPM1kVSy
Athugasemdir