Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 22. nóvember 2021 20:31
Brynjar Ingi Erluson
Dagný í liði vikunnar á Englandi
Dagný Brynjarsdóttir skoraði sigurmark West Ham
Dagný Brynjarsdóttir skoraði sigurmark West Ham
Mynd: Getty Images
Íslenska landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er í liði vikunnar í ensku ofurdeildinni en hún gerði sigurmark West Ham í 1-0 sigrinum á Tottenham Hotspur um helgina.

Markið gerði hún á 69. mínútu leiksins en þetta var annað mark hennar fyrir félagið á tímabilinu.

Hún er að leika sitt annað tímabil með West Ham en sigurinn þýðir að liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 12 stig eftir átta umferðir.

Dagný er í liði vikunnar en liðsfélagi hennar Mackenzie Arnold er einnig í liðinu sem má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner