Fotbolti.net
22.11.21 - 19:45
Brynjar Ingi Erluson

Ramos í hópnum gegn Man City

Sergio Ramos er klár í slaginn

Sergio Ramos er klár í slaginn

Canon

Mynd: EPA

Spænski varnarmaðurinn Sergio Ramos verður í hópnum hjá Paris Saint-Germain fyrir leikinn gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag en það er RMC Sport sem greinir frá.
Ramos kom til PSG á frjálsri sölu frá Real Madrid í sumar og gerði tveggja ára samning.

Hann hefur ekkert spilað vegna meiðsla og sögðu franskir fjölmiðlar frá því að PSG myndi ekki útiloka það að rifta samningnum við hann.

Nú er hann hins vegar klár í slaginn. Hann hefur æft með liðinu síðustu viku eða svo og er nú klár í að spila.

Ramos verður í hópnum gegn Man City á miðvikudag. Marquinhos, Presnel Kimpembe og Gianluigi Donnarumma verða þá allir klárir í leikinn og einnig Kylian Mbappe sem æfði þó ekki með liðinu í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.