Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fim 22. desember 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Risaleikur á Etihad
Mynd: Getty Images
Manchester City og Liverpool berjast um síðasta lausa sætið í 8-liða úrslit enska deildabikarsins á Etihad-leikvanginum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00.

Liverpool vann keppnina á síðasta ári eftir að hafa unnið Chelsea eftir vítakeppni.

Man City hafði verið áskrifandi að titlinum þar á undan en félagið er það næst sigursælasta í keppninni á eftir Liverpool.

Liðin berjast um sæti í 8-liða úrslitum á Etihad-leikvanginum en nokkra leikmenn vantar í bæði lið. Virgil van Dijk er væntanlega ekki með Liverpool og þá mun Julian Alvarez ekki spila með Man City.

Leikur dagsins:
20:00 Man City - Liverpool
Athugasemdir
banner
banner
banner