Fotbolti.net
22.12.23 - 16:02
Elvar Geir Magnússon

Arnar áfram með Víking - Viðræðum við Norrköping slitið

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Víkingur hefur slitið viðræðum við Norrköping um Arnar Gunnlaugsson en í tilkynningu frá Víkingi segir að töluvert hafi borið á milli.

„Tilboð Norrköping var ekki nálægt því sem við teljum virði Arnars Gunnlaugssonar vera. Því ákvað félagið að afþakka frekari samningaviðræður og setja allan fókus á undirbúning fyrir næsta tímabil," segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

„Arnar er afar fær þjálfari og mikilvægur okkur Víkingum og er ég afar spenntur fyrir áframhaldandi samstarfi með Arnari.“

Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, hefur einnig verið orðaður við Norrköping.
Hvað kostar Arnar Gunnlaugsson?
TENGT EFNI

Hvað kostar Arnar Gunnlaugsson?

Fréttatilkynning Víkings í heild:
Stjórn knattspyrnudeildar Víkings hefur hafnað tilboði sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping í Arnar Gunnlaugsson þjálfara meistaraflokks karla. Jafnframt hefur félagið slitið viðræðum við sænska félagið. Eftir viðræður síðustu daga kom í ljós að töluvert bar á milli félaganna. Arnar Gunnlaugsson hefur skilað félaginu frábæru starfi undanfarin ár og framundan er spennandi og mikilvægt tímabil fyrir okkur Víkinga.

Víkingur.is óskaði eftir viðbrögðum frá Kára Árnasyni, yfirmanni knattspyrnumála hjá Víking

„Tilboð Norrköping var ekki nálægt því sem við teljum virði Arnars Gunnlaugssonar vera. Því ákvað félagið að afþakka frekari samningaviðræður og setja allan fókus á undirbúning fyrir næsta tímabil. Arnar er afar fær þjálfari og mikilvægur okkur Víkingum og er ég afar spenntur fyrir áframhaldandi samstarfi með Arnari.“

Gleðileg jól kæru Víkingar og takk fyrir ómetanlegan stuðning á árinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.