Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 23. janúar 2020 06:00
Auglýsingar
Kop.is Pub quiz í kvöld
Mynd: Getty Images
Í kvöld klukkan 18:00 ætla þeir félagar á Kop.is að henda upp þrælskemmtilegu Pub Quiz-i á sportbarnum Sport & Grill í Smáralindinni.

Keppt verður í 2ja manna liðum og verða spurningarnar almennt um fótbolta, en að sjálfsögðu með Liverpool slagsíðu. Séu menn ekki með félaga, þá er samt um að gera að mæta og menn para sig þá saman á staðnum.

Vinningarnir fyrir sigur í keppninni eru glæsilegir, en það eru Sport & Grill, VITA Sport, Ölgerð Egils Skallagrímssonar og Jói Útherji sem sjá um að sigurvegararnir haldi vel glaðir heim á leið.

Strax að keppni lokinni hefst hörkuspennandi viðureign Wolves og Liverpool í beinni á staðnum.

Nú er um að gera að taka tímann frá, taka þátt í skemmtilegri spurningakeppni, fylgjast með toppleik í ensku deildinni og gera vel við sig í mat og drykk.

Viðburðurinn á Facebook
Athugasemdir
banner
banner
banner