sun 23. janúar 2022 12:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benzema: Sá sem gagnrýnir Messi veit ekkert um fótbolta
Mynd: EPA
Karim Benzema framherji Real Madrid hefur komið Lionel Messi leikmanni PSG og fyrrum leikmanni Barcelona til varnar.

Messi gekk til liðs við PSG frá Barcelona í sumar eftir að spænska félagið gat ekki borgað honum laun vegna fjárhagsvandræða félagsins.

Það hefur gengið brösulega hjá Messi fyrir framan markið í Frakklandi en honum hefur aðeins tekist að skora eitt mark í ellefu leikjum. Þó er hann með fimm mörk í fimm leikjum í Meistaradeildinni.

Hann hefur fengið mikla gagnrýni en Benzema segir að sá sem gagnrýnir hann viti ekkert um fótbolta.

„Hvernig mun hann ekki ná árangri? Hann er bara að aðlagast því hann skorar ekki mörg mörk. Sjáðu hvað hann gerir á vellinum, þú getur ekki gagnrýnt svona leikmann. Sá sem gagnrýnir Messi veit ekkert um fótbolta."

PSG mætir Reims í kvöld en Messi er nýkominn til baka eftir að hafa fengið Covid, þá er Gianluigi Donnarumma markvörður liðsins ekki með í dag vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner