Fotbolti.net
23.01.23 - 18:35
Brynjar Ingi Erluson

Man City kaupir Perrone frá Vélez (Staðfest)

Man City kaupir Perrone frá Vélez (Staðfest)
Canon

Mynd: Man City

Manchester City staðfesti í kvöld kaupin á Máximo Perrone frá Vélez en hann gerði fimm og hálfs árs samning við félagið.
Enska félagið náði samkomulagi við Vélez fyrir nokkrum dögum síðan en kaupverðið er 8,2 milljónir punda.

Perrone, sem er tvítugur, spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Vélez á síðasta ári en síðan þá hefur hann spilað 33 leiki og komið að fimm mörkum.

Hann skrifaði í dag undir fimm og hálfs árs samning við Manchester City og mun byrja að æfa með liðinu eftir hann hefur lokið þátttöku sinni með argentínska U20 ára landsliðinu í Suður-Ameríkukeppninni.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.