Stjórn KSÍ hefur samþykkt tillögu dómaranefndar sambandsins um að áfram verði fimm skiptingar leyfðar á hvort lið á Íslandsmótinu í sumar.
Fjölgað var úr þremur skiptingum í fimm síðasta sumar í kjölfarið á Covid-19 faraldrinum. Sami háttur verður á mótinu á komandi tímabili.
Fjölgað var úr þremur skiptingum í fimm síðasta sumar í kjölfarið á Covid-19 faraldrinum. Sami háttur verður á mótinu á komandi tímabili.
„Þóroddur Hjaltalín, formaður dómaranefndar KSÍ, kynnti tillögu dómaranefndar um að fjölga leikmannaskiptingum tímabilið 2021 á sama hátt og gert var 2020," segir í fundargerð stjórnar KSÍ.
„Reynslan af fyrirkomulaginu 2020 var góð að mati nefndarinnar. Stjórn KSÍ samþykkti tillögu dómaranefndar um fjölda leikmannaskiptinga 2021 (5 skiptingar)."
Athugasemdir