Fotbolti.net
23.03.20 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Ítalski boltinn

Buffon að ganga frá nýjum samningi við Juventus

Buffon að ganga frá nýjum samningi við Juventus
Canon

Mynd: Getty Images

Hinn 42 ára gamli Gianluigi Buffon er ekki á því að leggja hanskana á hilluna samkvæmt frétt Goal.com í dag.

Buffon verður samningslaus hjá Juventus þann 30. júní en hann er að ganga frá nýjum samningi.
Buffon hefur spilað ellefu leiki á þessu tímabili með Juventus en hann kom aftur félagsins síðastliðið sumar eftir stutt stopp hjá PSG.

Giorgio Chiellini og Blaise Matuidi eru einnig að ganga frá nýjum samninig við Juventus en þeir eru eins og Buffon núna með samning til 30. júní.

Chilleini hefur verið hjá Juventus síðan 2005 en hann hefur verið mikið meiddur á tímabilinu og einungis spilað þrjá leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.