Fatih Terim, þjálfari tyrkneska liðsins Galatasaray, er með kórónuveiruna en þetta staðfesti hann á Twitter-síðu sinni í kvöld.
Terim er í guðatölu í Tyrklandi en hann lék með Galatasaray í ellefu ár og spilaði þá 51 landsleik fyrir Tyrkland.
Hann hefur þrisvar sinnum þjálfað tyrkneska landsliðið en í dag þjálfar hann Galasaray og .það í fjórða sinn á þjálfaraferlinum.
Það eru fjórir dagar síðan að tyrknesku deildirnar voru settar í frí til að koma í veg fyrir útbreiðslu á kórónaveirunni.
Í kvöld tilkynnti Terim fylgjendum sínum á Twitter að hann væri smitaður af veirunni. Hann segist í góðum hödum á spítala í Istanbúl og mun uppfæra stöðuna á næstu dögum.
Bugün yapılan test sonuçlarına göre Corona Virüs sonucum pozitif çıkmıştır. Hastanede emin ellerdeyim. Merak etmeyin. En kısa zamanda haberleşmek üzere..
— Fatih Terim (@fatihterim) March 23, 2020
Athugasemdir