Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 23. mars 2023 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Segir McTominay fullkominn fyrir Newcastle
Mynd: EPA

Danny Murphy fyrrum leikmaður Liverpool og Fulham segir að Scott McTominay miðjumaður Manchester United sé fullkominn fyrir Newcastle.


Hann segir þetta eftir að skoski miðjumaðurinn var orðaður við Newcastle en hann virðist ekki vera í náðinni hjá Erik ten Hag stjóra Manchester United.

Hann hefur aðeins komið við sögu í sjö deildarleikjum á þessari leiktíð en hann hefur verið stór hluti af liðinu síðustu ár.

„Ég fíla Scott McTominay mikið. Hann fær stundum ósanngjarna gagnrýni. Eins og Eddie Howe og Newcastle spila þá er hann fullkominn. Mjög sterkur, 'box í box'. Hann leggur hart að sér," sagði Murphy hjá talkSPORT.


Athugasemdir
banner