Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. júní 2021 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Copa America í dag - Brassar geta komist áfram með sigri í toppslagnum
Mynd: EPA
Það fara fram tveir leiki í Copa America í kvöld, leikið er í B-riðli og í dag er 4. leikdagurinn í riðlinum.

Fimm lið eru í riðlinum og situr eitt lið hjá í hverri umferð.

COPA AMERICA: Group B
21:00 Ecuador - Perú
00:00 Brasilía - Kólumbía

Brasilía er með sex stig og markatöluna 7-0 eftir tvo leiki. Kólumbía, andstæðingur Brasilíu, er með fjögur stig eftir þrjá leiki.

Ekvador er með eitt stig eftir tvo leiki, tveimur stigum minna en Perú eftir jafnmarga leiki.

Brasilía fer áfram með sigri en fjögur lið af fimm í riðlinum fara áfram í 8-liða úrslit.

Venesúela situr hjá á þessum leikdegi, liðið er með tvö stig eftir þjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner