Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 23. júlí 2022 11:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mount klár í að taka við fyrirliðabandinu
Mynd: Getty Images
Barcelona er á eftir Cesar Azpilicueta fyrirliða Chelsea en þessi 32 ára gamli leikmaður á eitt ár eftir af samningi sínum hjá enska félaginu.

Thomas Tuchel stjóri Chelsea er pirraður á Barcelona og vill gera allt til að halda Azpilicueta.

„Þetta er erfitt. Ég er ekki viss um að ég vilji gefa Azpilicueta það sem hann vill," sagði Tuchel.

Azpilicueta var ekki með Chelsea þegar liðið tapaði gegn Charlotte FC á dögunum í vítaspyrnukeppni. Mason Mount var fyrirliði liðsins í leiknum.

„Ég er enn ungur og er að læra en þegar tækifæri gefst þá vil ég taka það. Stjórinn treysti mér til að vera fyrirliði og ég tók þeirri ábyrgð. Hvort sem við vinnum eða töpum tek ég því,"

Hann bætti því við að hann vilji sýna gott fordæmi á vellinum en væri ekki 'vocal'.


Athugasemdir
banner
banner
banner