Jose Mourinho, stjóri Tottenham, ætlar ekki að selja miðjumanninn Dele Alli frá félaginu.
Alli hefur ekki verið í leikmannahópi Tottenham í síðustu tveimur leikjum og hann hefur í kjölfarið verið orðaður við PSG.
Alli hefur ekki verið í leikmannahópi Tottenham í síðustu tveimur leikjum og hann hefur í kjölfarið verið orðaður við PSG.
Hinn 24 ára gamli Alli fór hins vegar með Tottenham til Norður-Makedóníu fyrir leikinn gegn Shkendija í Evrópudeildinni á morgun.
„Ég hef alltaf sagt að það er ekkert vandamál að hafa hann í hópnum en fyrir hann, líkt og aðra, er mikilvægt að sýna frammistöðu," sagði Mourinho á fréttamannafundi í dag
„Hann á möguleika á að spila og það veðrur mikilvægt fyrir hann að spila og standa sig vel."
Athugasemdir