Morð á 33 ára dómara og þrítugri unnustu hans hefur vakið mikinn óhug á Ítalíu.
Daniele De Santis var dómari í Serie C og þótti efnilegur, hann var aðeins einu ári frá því að verða B-deildardómari og þaðan hefði stefnan verið sett á A-deildina.
Parið var stungið til bana á sínu eigin heimili og voru nágrannar sem sáu morðingjann yfirgefa íbúðina. Hann var grímulaus og með bakpoka.
De Santis, sem dæmdi yfir 130 leiki í C- og D-deildum ítalska boltans, átti að vera fjórði dómari á bikarleik Monopoli gegn Modena sem fór fram fyrr í kvöld.
Atvikið átti sér stað í Lecce og hefur lögreglan hrint af stað víðamikilli leit að morðingjanum.
Athugasemdir