Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 23. september 2020 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tottenham í viðræðum um Skriniar - Milik möguleiki
Milan Skriniar
Milan Skriniar
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano, sérfræðingur þegar kemur að félagaskiptum, greinir frá því á Twitter í gærkvöldi að Tottenam væri að skoða leikmenn til að styrkja hópinn.

Romano segir að Tottenham sé að skoða að fá Milan Skriniar, miðvörð Inter. Jose Mourinho er sagður mikill aðdáandi. Inter vill fá 60 milljónir evra fyrir Skriniar.

Þá segir Romano frá því að Tottenham hafi verið spurt hvort félagið hefði áhuga á Arkadiusz Milik, framherja Napoli. Viðræður Roma um kaup á Milik hafa runnið út í sandinn og því gæti hann farið til Englands.

Romano segir að Tanguy Ndombele muni ekki fara í skiptum fyrir Skriniar til Inter og segir Ruben Dias, leikmann Benfica, einnig vera á blaði hjá Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner