Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 23. september 2021 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
James: Þetta er nýr kafli fyrir mig
Mynd: Getty Images
James Rodriguez gekk til liðs við Al Rayyan í Katar í gær frá Everton.

Hann gekk til liðs við Everton frá Real Madrid á síðustu leiktíð. Honum tókst hinsvegar aðeins að spila 23 leiki í deildinni þar sem hann átti mikið við meiðsli að stríða.

Hann segist hafa átt erfitt uppdráttar en hlakkar til að byrja nýja tíma í Katar.

„Ég hef átt mjög erfitt, þetta er gott skref fyrir mig," sagði James.

„Ég vona að mér muni ganga vel, það er langt síðan ég spilaði síðast að einhverju viti en ég ætla að gera það hér með hjálp allra og ég vona að mér takist að gera góða hluti. Ég er ánægður með að vera kominn hingað, þetta er nýr kafli fyrir mig," sagði James í sínu fyrsta viðtali sem leikmaður Al Rayyan.
Athugasemdir
banner
banner
banner