Keflavík mætir ÍA í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar og mun með jafntefli eða sigri tryggja veru sína í efstu deild. Tapi Keflavík þarf liðið að treysta á að HK tapi gegn Breiðabliki.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar af þjálfurum Keflavíkur, ræddi við Fótbolta.net um lokaleikinn í deildinni.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, annar af þjálfurum Keflavíkur, ræddi við Fótbolta.net um lokaleikinn í deildinni.
Geta endað í 7. sæti eða því 11.
„Mér líst mjög vel á leikinn. Þetta verður hörku spennandi, við vonumst til að fá fleiri á völlinn en venjulega, það lítur aðeins betur með veðurspá," sagði Siggi Raggi.
„Það er aðeins skrítið því við mætum þeim tvisvar í röð, mætum þeim líka í undanúrslitum bikarsins. Við vitum að þetta er stór leikur fyrir okkar stráka að spila. Við getum endað alls staðar frá 7. sæti niður í 11. sætið, fer eftir því hvernig síðasta umferðin fer. Við vonumst auðvitað til að vinna og ná að tryggja sætið okkar í deildinni. Það er ofboðslega mikilvægt fyrir félagið."
Leikmenn snúið til baka
Bæði lið eru á talsverðu skriði, ÍA unnið þrjá leiki í röð og Keflavík tvo. „Við erum búnir að endurheimta svolítið af leikmönnunum okkar og það munar mjög miklu fyrir okkur. Menn hafa komið til baka úr meiðslum og leikbönnum. Menn hafa stigið upp og staðið sig vel, núna þarf að reka endahnútinn á þetta verkefni og vonandi náum við að landa sigri. Völlurinn er mjög góður og ég held að þetta verði bara hörkuslagur."
Eru allir klárir í slaginn? „Rúnar og Kian Willams eru í meiðslum og Oliver Kelaart hefur einnig verið í smá meiðslum. Aðrir eru held ég klárir."
„Rúnar fann aðeins til ennþá eftir að hann byrjaði aftur og maður má ekki finna neitt til þegar maður er að jafna sig af beinmari. Það var tekin ákvörðun að taka skref til baka. Hann er aðeins að skokka núna og við tökum stöðuna á honum daglega."
Er í höndum Keflvíkinga
Verður einhver á bekkum sem fylgist með gangi mála í Kópavogi þar sem HK mætir Breiðabliki? „Við höfum ekkert rætt það. Það er mikilvægast fyrir okkur að við séum með einbeitingu á okkar leik. Við höfum spilað vel undanförnu og viljum halda áfram að gera eins vel og við getum í því. Þetta er í okkar höndum og það er jákvætt. Við erum ekki háðir úrslitum í öðrum leikjum ef við vinnum okkar leik. Við einbeitum okkur að okkar leik og ætlum að vinna hann."
Býst við því að vera áfram þjálfari Keflavíkur
Verður þú áfram þjálfari Keflavíkur á næsta tímabili? „Ég er með ótímabundinn samning við Keflavík. Ég er í fullu starfi hjá Keflavík bæði sem þjálfari meistaraflokks og yfirmaður fótboltamála. Ég veit ekki annað en maður veit aldrei í fótbolta," sagði Siggi Raggi að lokum.
Sjá einnig:
Lokaumferðin verður í beinni á X977
laugardagur 25. september
14:00 Víkingur R.-Leiknir R. (Víkingsvöllur)
14:00 Breiðablik-HK (Kópavogsvöllur)
14:00 Keflavík-ÍA (HS Orku völlurinn)
14:00 KA-FH (Greifavöllurinn)
14:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
14:00 Fylkir-Valur (Würth völlurinn)
Athugasemdir