23.11.20 - 22:24
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Bilbao fór illa með Betis

Iker Muniain og Inaki Williams fögnuðu saman gegn Betis

Mynd: Getty Images

<b>Athletic 4 - 0 Betis</b>
1-0 Victor Ruiz ('9 , sjálfsmark)
2-0 Ander Capa ('33 )
3-0 Iker Muniain ('59 )
4-0 Alex Berenguer ('68 )
1-0 Victor Ruiz ('9 , sjálfsmark)
2-0 Ander Capa ('33 )
3-0 Iker Muniain ('59 )
4-0 Alex Berenguer ('68 )
Athletic Bilbao vann Real Betis 4-0 í spænsku deildinni í kvöld en þetta var fjórði sigur liðsins á leiktíðinni.
Martröð Betis hófst á 9. mínútu er Victor Ruiz skoraði sjálfsmark áður en Ander Capa bætti við öðru á 33. mínútu.
Iker Muniain gerði þriðja markið á 59. mínútu og Alex Berenguer gulltryggði sigurinn með marki níu mínútum síðar.
Bilbao er í áttunda sæti með 12 stig á meðan Betis er í tólfta sæti með jafnmörg stig.