Vængmaðurinn Ousmane Dembele er leikfær og getur því spilað Meistaradeildarleik Barcelona gegn Benfica í kvöld. Það sama á við um varnarmanninn Sergino Dest sem misst hefur af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla.
Dembele er vanur því að vera á meiðslalistanum en hann varð fyrir bakslagi í endurkomu sinni fyrir þremur vikum.
Það er jákvætt fyrir Xavi að Dembele sé mættur aftur en leikurinn í kvöld er virkilega mikilvægur. Barca er sem stendur í öðru sæti riðilsins, tveimur stigum á undan Benfica.
Barcelona leikur gegn Bayern München í lokaumferðinni en sigur í kvöld tryggir katalónska liðinu sæti í útsláttarkeppninni.

‼ BREAKING NEWS
— FC Barcelona (@FCBarcelona) November 23, 2021
Dest and Dembélé declared fit and ready to play in #BarçaBenfica pic.twitter.com/CNNUOKnuWo
Athugasemdir