Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 24. janúar 2021 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
ÍBV semur við unga leikmenn
Mynd: ÍBV
ÍBV var að semja við nokkra unga og efnilega leikmenn félagsins sem skrifuðu allir undir tveggja ára samninga.

Strákarnir voru í lykilhlutverkum í 3. flokki í fyrra sem náði góðum árangri. Þeir munu því spila fyrir 2. flokk núna og ef þeir standa sig vel þar geta þeir fengið tækifæri með KFS eða jafnvel aðalliði ÍBV.

Strákarnir heita Adam Smári Sigfússon, Dagur Einarsson, Einar Þór Jónsson, Haukur Helgason og Karl Jóhann Örlygsson.

,Það er gaman að sjá þann efnivið sem er í Eyjum og eru allir á 2. og 3. flokks aldri sem hafa áhuga á fótbolta hvattir til að mæta á æfingar og kynnast því metnaðarfulla starfi sem er í fótboltanum í Eyjum," segir meðal annars í frétt á vefsíðu félagsins.

„Til hamingju með samningana strákar og áfram ÍBV!"
Athugasemdir
banner