Fotbolti.net
24.01.23 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sierra Marie Lelii aftur í Þrótt (Staðfest)

Sierra Marie Lelii í leik með Þrótti árið 2017

Sierra Marie Lelii í leik með Þrótti árið 2017

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz

Sierra Marie Lelii hefur skrifað undir samning við Þrótt en hún mun leika með liðinu á komandi tímabili.

Sierra lék með Þrótti í næst efstu deild árið 2017 þá lék hún 18 leiki og skoraði sjö mörk og gekk síðan til liðs við Hauka en mun nú leika með Þrótti í efstu deild næsta sumar.

Sierra er bandarísk en hefur búið hér á landi frá því hún kom til Þróttar fyrst árið 2017. Hún kemur aftur til liðsins frá ÍH.

Hún  á að baki 56 leiki á Íslandi og skorað 29 mörk.

„Hún hefur æft með mfl. Þróttar undanfarna mánuði, staðið sig mjög vel og mun styrkja hópinn verulega í sumar. Bjóðum hana velkomna í Þrótt á ný." Segir í tilkynningu frá Þrótti.

Þróttur hafnaði í 3. sæti á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.