Man Utd gæti keypt McTominay til baka - Man Utd hrifið af Sangare - Real Madrid með augun á Van de Ven
   þri 24. febrúar 2026 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Höskuldur: Maður vill trúa því að Besta deildin hafi tekið framfaraskref
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, er í íslenska landsliðshópnum sem á að mæta Mexíkó klukkan tvö aðfaranótt fimmtudags í æfingaleik ytra. Hann ræddi við KSÍ TV í aðdraganda leiksins.


„Það er búist við pakkfullum velli og þetta er stórþjóð í fótbolta. Þótt þetta sé ekki opinber landsleikjagluggi vitum við að þeir eru að fara stilla upp ógnarsterku liði. Þetta er alvöru verkefni og þýðingamikill leikur fyrir okkur sem eru mættir hingað," sagði Höskuldur.

Þetta er ekki opinber landsleikjagluggi svo hópurinn er skipaður að mestu leyti leikmönnum sem spila í Bestu deildinni.

„Fyrst og síðast er spennandi að sjá hvernig við mátum okkur við svona sterkan keppinaut. Maður vill trúa því að Besta deildin hafi tekið framfaraskref á síðustu árum og þá er flott að fá svona svið til að raungera þá uppskeru að við séum búnir að hækka ránna í íslensku deildinni."


Athugasemdir
banner
banner
banner