Fotbolti.net
24.05.16 - 22:36
Ingunn Hallgrímsdóttir

Guðmunda: Gott að fá að spila inni

Auglýsing
Guðmunda var ánægð með sigurinn.

Guðmunda var ánægð með sigurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Hertz
Guðmunda Brynja Óladóttir var að vonum ánægð eftir 2-0 útisigur Selfoss gegn ÍA í Pepsi-deild kvenna í kvöld, en leikið var í Akraneshöllinni.
„Þetta var mjög góður leikur. Það var gott að fá að spila inni þar sem veðrið hafði ekki áhrif á leikinn og mér fannst við spila vel. Við náðum að halda boltanum vel, sem er stefnan hjá okkur,\" sagði Guðmunda.



„Við fengum þrjú stig gegn mjög góðu liði ÍA og það er gott að koma hingað og taka þrjú stig á mjög góðum útivelli. Við hefðum að klára krossana okkar betur og byggja upp betri sóknir.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.