Fotbolti.net
24.05.19 - 22:09
Alexandra Bía Sumarliðadóttir

Júlíus Ármann: Við vissum að við áttum þetta inni

Auglýsing
Margrét Regína fyrirliði Aftureldingar ásamt Júlíusi þjálfara

Margrét Regína fyrirliði Aftureldingar ásamt Júlíusi þjálfara

Canon

Mynd: Raggi Óla

Hertz
Afturelding vann í kvöld sinn fyrsta sigur í sumar í Inkasso-deild kvenna eftir 5-2 sigur á ÍR.



„Bara frábær tilfinning. Við vissum að við áttum þetta inni." sagði Júlíus Ármann þjálfari Aftureldingar eftir sigurinn.



Júlíus var ánægðastur með hvernig stelpurnar komu til baka í kvöld.



„Að lenda 1-0 undir og koma til baka og ná að vera 3-1 yfir í hálfleik. Setja svo 2 mörk mjög fljótlega í seinni hálfleik, mér fannst það vera karakter."
Næsti leikur Aftureldingar er gegn Haukum fimmtudaginn 6.júní. Júlla líst vel á það verkefni.



„Mjög spennandi. Við erum tilbúnar til að mæta Haukunum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.