Fjórir leikir fóru fram í 4. deild karla í kvöld. Skallagrímur lék að Reyni H í A-riðlinum og gjörsigraði liðið, 10-1.
Skallagrímur vann fyrsta leik sinn í 4. deildinni í ansi umdeildum leik gegn Árbæ áður en liðið spilaði við Reyni H. í kvöld og bætti öðrum sigri við safnið í kvöld.
Liðið skoraði tíu mörk gegn Reyni þar sem þrír leikmenn skoruðu tvívegis í leiknu en það voru þeir Sergio Fuentes Jordan, Alexis Alexandrenne og Declan Joseph Redmond.
Skallagrímur er á toppnum með 6 stig eftir fyrstu tvo leikina.
Úlfarnir unnu SR 4-2 í B-riðlinum. Úlfarnir voru 2-1 yfir í hálfleik áður en Guðfinnur Þórir Ómarsson jafnaði metin úr víti á 54. mínútu. Heimamenn náðu að bæta við tveimur mörkum áður en flautað var til leiksloka og fyrsti sigur Úlfana í sumar staðreynd.
RB vann á meðan annan leik sinn með því að leggja KÁ að velli, 2-1. Jón Arnór Sverrisson gerði bæði mörk RB.
Léttir náði þá í fyrsta sigur sinn í C-riðlinum er liðið vann KM 2-0. Kristján Jóhannesson kom Létti yfir áður en Einar Már Gíslason tryggði sigurinn undir lok leiks.
Úrslit og markaskorarar:
A-riðill:
Reynir H. 1 - 10 Skallagrímur
0-1 Sigurjón Logi Bergþórsson ('23 )
0-2 Sergio Fuentes Jorda ('24 )
0-3 Alexis Alexandrenne ('26 )
0-4 Declan Joseph Redmond ('34 )
0-5 Alexis Alexandrenne ('42 )
0-6 Sölvi Snorrason ('50 )
0-7 Sergio Fuentes Jorda ('55 )
0-8 Declan Joseph Redmond ('67 )
1-8 Bárður Jóhönnuson ('75 )
1-9 Hörður Óli Þórðarson ('83 )
1-10 Þórður Ellertsson ('86 )
B-riðill:
Úlfarnir 4 - 2 SR
1-0 Ásgeir Eyþórsson ('17 )
1-1 Bragi Friðriksson ('25 )
2-1 Jökull Steinn Ólafsson ('39, víti )
2-2 Guðfinnur Þórir Ómarsson ('54, víti )
3-2 Axel Máni Sigurðsson ('65 )
4-2 Kristján Ólafur Torfason ('80 )
KÁ 1 - 2 RB
0-1 Jón Arnór Sverrisson ('18 )
0-2 Jón Arnór Sverrisson ('30 )
1-2 Egill Örn Atlason ('45, víti )
C-riðill:
KM 0 - 2 Léttir
0-1 Kristján Jóhannesson ('58 )
0-2 Einar Már Gíslason ('90 )
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir