Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 24. maí 2023 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man Utd eitt af þeim félögum sem boðið hefur verið að kaupa Neymar
Neymar.
Neymar.
Mynd: EPA
Manchester United er eitt af þeim félögum sem hefur verið boðið að kaupa Neymar frá Paris Saint-Germain í sumar.

Þetta kemur fram á Sky Sports en þar segir jafnframt að hann sé í augnablikinu ekki á óskalista Man Utd.

Framtíð Neymar hjá PSG er í óvissu en félagið er tilbúið að selja hann í sumar.

Hinn 31 árs gamli Neymar hefur ekki staðist þær væntingar sem gerðar voru til hans er PSG gerði hann að dýrasta leikmanni sögunnar sumarið 2017. Hann hefur mikið verið meiddur og misst af fjölda leikja vegna þess.

Neymar er samningsbundinn PSG til 2027 en hann er ekki vinsæll hjá stuðningsmönnum og félagið horfir í það að selja hann í sumar. PSG ætlar einnig að losa við Lionel Messi, en það verða breytingar í frönsku höfuðborginni í sumar. PSG ætlar að breyta um stefnu og ætlar sér að hætta að kaupa stjörnur sem eru ekki mjög hungraðar að leggja mikið á sig fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner