Fotbolti.net
24.05.26 - 22:36
Ívan Guðjón Baldursson

Slot beðinn um eitt orð til að lýsa tímabilinu: Meiðsli

Slot beðinn um eitt orð til að lýsa tímabilinu: Meiðsli
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot þjálfari Liverpool svaraði spurningum eftir 1-1 jafntefli við Brentford í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins í dag.
Mohamed Salah lék sinn lokaleik fyrir stórveldið eftir mögnuð níu ár í Liverpool. Hann lagði upp eina mark Liverpool í leiknum til að bæta stoðsendingamet Steven Gerrard.

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra
TENGT EFNI

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra



Þetta var síðasti leikurinn á miklu vonbrigðatímabili fyrir Englandsmeistara síðustu leiktíðar og er gífurleg vinna framundan fyrir næsta tímabil sem lofar mikilli spennu.

Slot var spurður eftir leikinn hvort það væri eitthvað sem hann myndi gera öðruvísi ef hann fengi að byrja tímabilið upp á nýtt.

„Það er margt sem ég myndi gera öðruvísi. Ég hef ekki verið fullkominn en ég hefði svarað þessari spurningu með nákvæmlega sama hætti ef þú hefðir spurt mig þegar við unnum deildina á sama tíma í fyrra. Ekki allar ákvarðanir geta verið réttar þó manni líði eins og þær séu réttar þegar maður er að taka þær," sagði Slot sem var svo beðinn um eitt orð til að lýsa tímabilinu.

„Ég myndi segja meiðsli."

Salah var ekki sá eini sem lék kveðjuleik fyrir Liverpool því Andy Robertson er að yfirgefa félagið á frjálsri sölu. Curtis Jones kvaddi ekki en hann er sterklega orðaður við félagaskipti til Inter í sumar.

„Við kveðjum tvær goðsagnir sem hafa unnið níu titla á níu árum hjá þessu félagi. Ég hef oft sagt að Liverpool er félag sem kann að fagna deildarmeistaratitlum, takast á við mótlæti og halda upp á goðsagnir."

Bætti stoðsendingamet Gerrard og fékk heiðursskiptingu
TENGT EFNI

Bætti stoðsendingamet Gerrard og fékk heiðursskiptingu

Slot beðinn um eitt orð til að lýsa tímabilinu: Meiðsli
Canon

Mynd: EPA

Slot beðinn um eitt orð til að lýsa tímabilinu: Meiðsli
Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal38+4485
2Manchester City38+4278
3Manchester Utd38+1971
4Aston Villa38+765
5Liverpool38+1060
6Bournemouth38+457
7Sunderland38-654
8Brighton38+653
9Brentford38+353
10Chelsea38+652
11Fulham38-452
12Newcastle38-249
13Everton38-349
14Leeds38-747
15Crystal Palace38-1045
16Nott. Forest38-344
17Tottenham38-941
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.