Fotbolti.net
24.06.24 - 13:00
Fótbolti.net

75% telja að tíðni veðmála íslenskra leikmanna sé mikil

75% telja að tíðni veðmála íslenskra leikmanna sé mikil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍTF framkvæmdi á dögunum skoðanakönnun á meðal leikmanna í Bestu deild karla þar sem spurt var um þátttöku þeirra í veðmálum hvers konar og getraunaleikjum.

Könnunin er gerð af sænskri fyrirmynd eins og áður hefur komið fram og er hluti af verkefni sem snýr að fræðslu um veðmálaþátttöku og hagræðingu úrslita. Fjallað er um hana í fréttabréfi ÍTF.
Stefnt að fræðslu fyrir leikmenn um veðmál og hagræðingu úrslita
TENGT EFNI

Stefnt að fræðslu fyrir leikmenn um veðmál og hagræðingu úrslita

„Helstu niðurstöður könnunarinnar gefa sterklega til kynna að mikill meirihluti leikmanna í Bestu deild karla taki þátt í einhvers konar veðmálum eða getraunaleikjum og meirihluti þeirra veðji á fótboltaleiki í gegnum erlendar veðmálasíður. Það vekur sérstaka athygli að aðeins sáralítill hluti leikmanna segist veðja á íslenska fótboltaleiki og er það auðvitað jákvætt gefi það rétta mynd af raunveruleikanum," segir í fréttabréfinu.

10% leikmanna hafa glímt við andlega vanlíðan vegna veðmála og er það í samræmi við niðurstöður úr könnun sem gerð var á meðal leikmanna í sænsku deildinni, Allsvenskan.

Nálægt helmingur leikmanna hefur fengið einhverja fræðslu um hugsanleg tengsl veðmála og hagræðinu úrslita í fótboltaleikjum og um 40% leikmanna væri tilbúinn til að sækja slíka fræðslu ef hún myndi standa til boða.

Mikill meirihluti leikmanna, eða um 75%, telur að tíðni
fjárhættuspila eða veðmála leikmanna sé mikil eða mjög mikil sem
er vísbending um að almennt viðhorf leikmanna er að margir séu
að stunda veðmál og þá á fótboltaleiki.
75% telja að tíðni veðmála íslenskra leikmanna sé mikil
Canon

Mynd: Getty Images

75% telja að tíðni veðmála íslenskra leikmanna sé mikil
Canon

Mynd: Fréttabréf ÍTF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.