Fotbolti.net
24.07.20 - 23:30
Elvar Geir Magnússon

Owen spáir því að Man Utd vinni Leicester og Watford falli

Michael Owen.

Michael Owen.

Canon

Mynd: Getty Images

Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar verður á sunnudaginn. Michael Owen spáir því að hans fyrrum félagar í Manchester United muni tryggja sér Meistaradeildarsæti með því að vinna Leicester í lokaumferðinni.

Allra augu munu beinast að King Power leikvangnum á sunnudag en bæði lið vita að með sigri þá er sæti í topp fjórum tryggt.

Leicester er á eftir United og Chelsea, situr í fimmta sæti, en mun ná Meistararadeildarsæti með sigri.

„Þrátt fyrir að United hefur verið að hiksta að undanförnu held ég að liðið sé með of mikil gæði fyrir Leicester. Sjálfstraustið hjá Leicester eftir endurkomu enska boltans hefur ekki verið nægilega mikið," segir Owen sem spáir 3-1 sigri United.

Hann spáir því að Chelsea vinni Wolves og komist einnig í Meistaradeildina.
Þá spáir hann því að Arsenal vinni Watford og sendi þar með Watford niður í Championship-deildina.

sunnudagur 26. júlí
15:00 Southampton - Sheffield Utd
15:00 Newcastle - Liverpool
15:00 Man City - Norwich
15:00 Leicester - Man Utd
15:00 Crystal Palace - Tottenham
15:00 Chelsea - Wolves
15:00 Burnley - Brighton
15:00 Arsenal - Watford
15:00 West Ham - Aston Villa
15:00 Everton - Bournemouth

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.