24.09.20 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Erfið kveðjustund Suarez: Ætlar að sýna sig hjá Atletico

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
<i>„Þetta kemur mér svo á óvart. Ég var ekki undirbúinn undir þetta,"</I> sagði Luis Suarez á fréttamannafundi í dag þar sem hann kvaddi Barcelona.
Barcelona hefur selt hinn 33 ára gamla Suarez til Atletico Madrid á 5,5 milljónir punda en hann var ekki í áætlunum hjá Ronald Koeman, nýjum þjálfara Börsunga.

„Félagið þarf á breytingum að halda og þjálfarinn treysti ekki á mig. Ég vil sýna að ég get ennþá spilað á meðal þeirra bestu," sagði Suarez.
„Ég er spenntur fyrir því að ganga í raðir Atletico Madrid en ég hef ekki hugsað um það hvernig það verður að spila á móti Barcelona. Ég hef ekki alveg áttað mig á þessu ennþá."
Fréttamannafundurinn hjá Suarez var tilfinningaþrunginn en hann kveður Barcelona með miklum söknuði.

— Hagrid ✆ (@HagridFCB) September 24, 2020