Tvö efstu lið Pepsi Max-deildarinnar, FH og Valur, eigast við klukkan 16:15 í Kaplakrika í dag. FH-ingar þurfa á sigri að halda til að búa til einhverja smá spennu í titilbaráttunni en Valur nær ellefu stiga forystu með sigri.
FH hefur haft gott tak á Valsmönnum á heimavelli sínum í Krikanum og í síðustu 12 viðureignum hefur FH unnið 9 leiki og þrisvar sinnum hafa viðureignirnar endað með jafntefli.
FH hefur haft gott tak á Valsmönnum á heimavelli sínum í Krikanum og í síðustu 12 viðureignum hefur FH unnið 9 leiki og þrisvar sinnum hafa viðureignirnar endað með jafntefli.
„Við ætlum okkur að vinna topplið Vals í Krikanum í dag og halda þar með lífi í titilbaráttunni," segir í færslu á heimasvæði FH á Facebook.
„Það eru 13 ár liðin frá því Valur hrósaði síðast sigri á Kaplakrikavelli. Vonandi höldum við þessu ógnartaki á þeim rauðklæddu!"
FH og Valur hafa mæst 66 sinnum í efstu deild. FH hefur unnið 26 leiki, Valur 30 og 10 sinnum hafa liðin skilið jöfn.
BEINAR TEXTALÝSINGAR:
16:00 KA - HK
16:15 FH - Valur
16:15 Fjölnir - ÍA
16:15 KR - Grótta
19:15 Fylkir - Víkingur
19:15 Breiðablik - Stjarnan
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir