Jesse Lingard, sóknarmaður Manchester United, gæti verið á förum frá félaginu áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 5. október.
Umboðsmenn Lingard hafa átt í viðræðum við félög í Englandi og víðar í Evrópu.
Manchester United hefur hins vegar ekki fengið nein tilboð ennþá í Lingard.
Umboðsmenn Lingard hafa átt í viðræðum við félög í Englandi og víðar í Evrópu.
Manchester United hefur hins vegar ekki fengið nein tilboð ennþá í Lingard.
Lingard var í byrjunarliði Manchester United í 3-0 sigri á Luton í enska deildabikarnum í fyrrakvöld.
Hann á hins vegar ekki fast sæti í liðinu hjá Manchester United og ennþá er möguleiki á að hann rói á önnur mið á næstu vikum.
Athugasemdir