Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 24. september 2021 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ince um Sancho: Þetta er ekki FIFA
Mynd: EPA
Jadon Sancho gekk til liðs við Manchester United frá Dortmund í sumar fyrir 73 milljónir evra.

Hann hefur ekki heillað hingað til en hann hefur leikið sjö leiki og ekki komið að marki ennþá.

Paul Ince fyrrum leikmaður Manchester United gagnrýndi hann og Jesse Lingard í viðtali við The United Stand.

„Ég átta mig á því að Sancho er enn að læra, hann er ungur," sagði Ince.

„En þetta er ekki FIFA leikur, þetta snýst ekki um að hlaupa og hlaupa og reyna komast framhjá tveimur, þremur, fjórum leikmönnum og gera listir með boltann. Sancho og Lingard með allar þessar listir, spilið bara almennilegan fótbolta."
Athugasemdir
banner
banner
banner