Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. september 2021 12:53
Brynjar Ingi Erluson
Thiago snýr aftur eftir landsleikjatörnina
Thiago verður ekki með í næstu þremur leikjum
Thiago verður ekki með í næstu þremur leikjum
Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Thiago Alcantara verður ekki með í næstu þremur leikjum Liverpool en Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri félagsins, staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag.

Thiago meiddist í 3-0 sigri liðsins á Crystal Palace í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar og var ekki í hópnum gegn Norwich í deildabikarnum.

Hann missir af næstu þremur leikjum Liverpool vegna meiðsla í kálfa en Liverpool mætir Brentford um helgina, Porto í Meistaradeildinni í næstu viku og svo er stórslagur gegn Manchester City áður en landsleikjatörnin fer af stað.

Klopp segir að Spánverjinn verði klár eftir törnina.

Thiago kom til Liverpool frá Bayern München fyrir síðustu leiktíð en meiddist gegn Everton snemma á tímabilinu og missti því af hluta þess. Hann lék samtals 24 deildarleiki og gerði eitt mark.
Athugasemdir
banner
banner