Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 24. október 2020 16:30
Aksentije Milisic
Ajax skoraði þrettán - Stærsti sigur í sögu efstu deildar
Traore fagnar.
Traore fagnar.
Mynd: Getty Images
Ótrúlegum leik var að ljúka í hollensku úrvalsdeildinni.

Ajax heimsótti VVV Venlo og það er óhætt að segja að gestirnir lentu ekki í miklum vandræðum.

Ajax var fjórum mörkum yfir í hálfleik og á 52. mínútu fengu heimamenn rautt spjald. Í kjölfarið valtaði Ajax gjörsamlega yfir leikinn og gerði níu mörk í síðari hálfleiknum.

Lassina Traore skoraði fimm mörk og lagði upp þrjú fyrir Ajax. Daley Blind, Dusan Tadic og Klaas Jan Huntelaar komust á blað svo einhverjir séu nefndir.

Þessi sigur er sá stærsti í sögu hollensku úrvalsdeildarinnar.





Athugasemdir
banner
banner
banner