lau 24. október 2020 15:36
Aksentije Milisic
Byrjunarlið Man Utd og Chelsea: Thiago Silva byrjar - Cavani á bekknum
Mynd: Getty Images
Nú styttist í stórleik Manchester United og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og eru byrjunarliðin komin inn.

United vann Newcastle í síðustu umferð og þá vann liðið einnig PSG í París í miðri viku í Meistaradeild Evrópu þar sem Marcus Rashford gerði sigurmarkið seint í leiknum.

Chelsea hefur gert jafntefli í sínum tveimur síðustu leikjum. Liðið missti niður síðasta deildarleik gegn Southampton og lauk honum 3-3. Í kjölfarið gerði liðið markalaust jafntefli gegn Sevilla í Meistaradeild Evrópu.

Solskjær gerir enga breytingu frá sigurleiknum gegn Newcastle og heldur sér við sama lið.

Lampard gerir þrjár breytingu frá jafnteflisleiknum gegn Southampton. Mason Mount, Kepa og Anders Christensen fara út og inn koma Reece James, Thiago Silva og Edouard Mendy.

Manchester United: De Gea, Wan Bissaka, Lindelöf, Maguire, Shaw, McTominay, Fred, Mata, Fernandes, James, Rashford.
(Varamenn: Henderson, Matic, Pogba, Van de Beek, Greenwood, Tuanzebe, Cavani.

Chelsea: Mendy, James, Azpilicueta, Silva, Zouma, Chilwell, Jorginho, Kante, Pulisic, Werner, Havertz.
(Varamenn: Caballero, Rudiger, Kovacic, Mount, Ziyech, Giroud, Abraham.
Athugasemdir
banner
banner
banner