Fotbolti.net
24.10.20 - 12:00
Aksentije Milisic

Lampard um Cech: Ekki rómantísk ákvörðun

Lampard um Cech: Ekki rómantísk ákvörðun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Chelsea kom öllum á óvart fyrr í vikunni þegar liðið valdi Petr Cech í úrvaldeildarhóp sinn.

Cech hefur ekki spilað knattspyrnuleik í 18 mánuði og gaf Chelsea það út að hann væri valinn sem neyðarmarkvörður og að þetta sé varúðarskref vegna Covid-19.
Frank Lampard, var spurður út í málið eftir leik liðsins gegn Sevilla í Meistaradeild Evrópu sem lauk með markalausu jafntelfi.

„Þessi ákvörðun er ekki tekin út frá rómatíkinni. Pete nýtur þess að æfa, þannig er hann. Ég myndi njóta þess meir ef kálfarnir á mér væru ekki svona stífir eftir einn sprett," sagði Lampard.

„Með Pete, þá býst ég ekki við því að það gerist á þessu tímabili. En ég veit hvernig hann er og ef við lendum í vandræðum, þá getur þú ekki beðið um betri mann en Cech til þess að hjálpa þér."

Chelsea mætir Manchester United á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.